Hræðslumerki?

Ég hef nú ekki lesið allt viðtalið og venjulega taka íþróttafréttamenn fyrirsagnir úr samhengi til að gera þær aðeins dramatískari, en er ekki undarlegt að Ramos segist frekar hafa viljað sleppt Liverpool? Auðvitað hugsar Benitez/Sammy Lee, Mourinho og Fergie það sama en maður sér þá ekki viðurkenna það. Þeir segja allir 'frábært að fá svona stórt lið sem mótherja osfr...'

 Ramos sýnir smá hræðslu. Ég veit ekki alveg hvort að Calderon sé hrifinn af svona kommentum, ég meina Schuster var loksins rekinn fyrir að segjast ekki geta unnið Barca á Nou Camp (en Ramosi var fagnað þegar hann kom aftur til Madrid eftir 0-2 ósigur.. ha?), þó að dagar Schusters voru svo sem alveg taldir hvort sem er.

 Allavega er ég sem púllari sáttur, vegna þess að MU og Chelsea hafi fengið erfiða andstæðinga. Ég er nokkuð á því að við tökum Madrid, en það hefði nú alveg verið hægt að fá betri andstæðing, og þar er ég alveg sammála Ramos


mbl.is Ramos hefði viljað sleppa við Liverpool
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auðvitað vill engin þjóð framselja okkur fanga

Það þarf ekki annað en að skoða hvað við gerum við sakfellt fólk. Ég er viss um að þeir ytra séu skíthræddir um að við setjum þessa fanga á þing ef við fáum þá heim, c.f. Árna Johnsen
mbl.is Þrettán Íslendingar í fangelsi erlendis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverskonar frétt er þetta?

Þetta Actim módel er svo gjörsamlega tilgangslaust, ég býð fólki sem veit meira en ungabarn um fótbolta (þú þarft ekki einu sinni að vita hversu margir eru í liði) til að skoða stigagjöfina og hugsa aðeins um hvernig stigin eru gefin.

 

Betri frétt væri að blaðamenn væru farnir að taka mark á tölfræðimódelum sem eru álíka góð að dæma frammistöðu leikmanna og Mark Lawrenson er að tippa á Úrvalsdeildina


mbl.is Grétar Rafn fyrir ofan Cristiano Ronaldo
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um bloggið

Gísli Pálsson

Höfundur

Gísli Pálsson
Gísli Pálsson
Nýtt blogg; ég var með blogg annarsstaðar sem ég hætti að sinna því. Hugmyndin með þessu bloggi er fyrst og fremst að nöldra yfir fréttaflutningi mbl.is, en hver veit hvort þetta verði meira með tímanum
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband